Hveragerðis Skvísur!!!

07.11.2006 10:13:30 / helgabjorg

LOKSINS NÝ SÍÐA

LOKSINS ERUM VIÐ KOMNAR MEÐ BETRI OG FLOTTARI SÍÐU... 8)

SLÓÐIN ER:
http://hveroskvisur.blogspot.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 15:46:39 / valgy

komið jæja enn eina ferðina

Jæja stelpur.... nú gengur þetta ekki lengur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Það er svo LÖNGU kominn tími á hitting... við erum alveg að sökka feitt í þessu.
Ætla að leggja fram smá könnun hérna og svo verður ákveðinn dagsetning... ok?

Hvort viljiði hittast t.d. fimmtudaginn 16 eða 23 þá seinnipart, tjatt og át eða laugardaginn 11 eða 25 og þá hafa það á miðjum degi... taka smá göngu saman og borða svo eitthvað gott og auðvitað tjatt líka :)

KOMA SVO STELPUR.....ÞETTA GENGUR EKKI LENGUR


ALLAR AÐ KOMMENTA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Luv Valgý skipuleggjari ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 12:05:45 / Tinsí

Lítill prins fæddur:-)

Berglind okkar og Atli eignuðust lítinn prins í nótt.. eða stóran hann var 15 merkur og 53 cm.. algjört bjútí!!;)

Elsku vinir til hamingju með gullmolann ykkar.. og Ísold Freyja til hamingju með litla bróðir:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 16:59:04 / Sifs

kemmtileg lesning...

Snilldarlesning sem Katrín sendi á mig :)

En munið samt að kommenta um mig í síðustu færslu :)

Hér kemur lesningin:

Svolítið gaman að lesa þetta, ótrúlegt að mar sé á lífi c",)
================================================

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara
heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru
börn á 5., 6., 7. og 8. áratug síðustu aldar ekki að hafa lifað af.


HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við
hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í
offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika.

Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni
án þess að nokkur létist.

Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á
honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum.
Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og
komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir
daginn.

Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar
sem var flott að eiga!

Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki
fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki
heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn
var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að
kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli
og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg
augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og
margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og
létum eins og heima hjá okkur.

Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,
eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar
aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við
stjórnuðum okkur sjálf.



Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.
Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn.


Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í skátunum
og lærðum hnúta og kurteisi.

Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í
því...


OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!

Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum
frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt
saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og
reglur um líf okkar sem þeir segja að sé "okkur sjálfum fyrir bestu"?.

Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að
leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Við áttum bara gott líf er það ekki?


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 21:05:52 / Sifs

Enn einn leikurinn... svoooooo gaman !!!

Allir að skrifa í komment um mig :)

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?

Kveðja - Sif


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 15:31:25 / valgy

KOMA SVO STELPUR

Ætla að byrja á því að segja ykkur hvað ég á YNDISLEGANN mann... í gær þegar að ég var að fara að gefa Hafdísi Unu sopann sinn fyrir svefninn, fór með hana inn í svefnherbergi og ætlaði að fara að koma okkur kósý fyrir upp í rúmi, kippti sænginni af og hvað haldiði að hafi verið á koddanum :) DIGITAL VIDEO CAMERA :haha: hann er svo mikið yndi... er búin að vera að tala um að mig langi svo í svona síðustu daga... svo gaman að taka upp skemmtileg móment af Hafdísi Unu og tala nú ekki um í sundinu.

En þetta er nú samt ekki ástæðan fyrir þessu bloggi hjá mér... Nei heldur finnst mér kominn tími á að við ákveðum skvísuferð... og þá meina ég til KÖBEN.
Finnst sko LÖNGU kominn tími á að við förum allar saman út og VERSLUM af okkur rassg... :) hehe eða bara drekkum það af okkur eða bara verum saman. Eruð þið ekki sammála mér???????????????
Hvernig væri að stefna á að fara í apríl á næsta ári??? Verðum bara að ákveða dag og pannta flug.... örugglega hægt að fá flug á fínu verði ef að maður panntar tímalega... svo eru líka alltaf einhver tilboð að detta inn. Fínt að drífa sig í að pannta og borga flugið og þá getur maður farið að safna fyrir gjaldeyri...
Þetta þarf ekkert að vera dýrt... getum bara fjölmennt í herbergin, leigt bara 2 eða 3 herbergi.
ENDILEGA AÐ KOMMENTA HVAÐ YKKUR FINNST

Luv Valgý ofurspennta :)

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 17:42:13 / Bella

Flott nýja lúkkið á síðunni....

Hæ ég ætlaði bara að láta vita af mér;) Það er ekkert að gerast og væntanlegur fæðingardagur er á morgun 27. október. Er sko búin að bíða eftir þessum degi frá því í febrúar...takk fyrir8|

En það þýðir ekkert að kvarta þetta grey kemur bara þegar að því hentar svo mín pantaði sér bara strípur og klippingu á Selfossi á morgun....já það er ágætt að taka smá ferðalag á heimaslóðir svona rétt fyrir fæðingu, fær mann til að hugsa um eitthvað annað.....

Annars er ekkert að frétta héðan af Hvanneyri. Vona að þið hafið það gott elskurnar mínar og vonandi hitti ég ykkur allar sem allra allra fyrst...ok:haha:

ps. og endilega allir að senda mér "Hríðastrauma " í kvöld

Kv. bella ( alveg búin á því )


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 17:12:28 / valgy

Jebb jebb

Núverandi föt? Gallabuxur, cintamani flíspeysa og inniskór
Núverandi tími? 17:00
Núverandi skap? Bara mjög gott :)
Núverandi hár? Slegið með toppinn í spennu
Núverandi pirringur? neiii enginn pirringur hér
Núverandi lykt? Gubbuligt :) jebb dóttir mín er voða dugleg við að gubba á mig þessa dagana :)
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? LAGA TIL :( klára skvísuherbergið og setja upp gardínur í mitt :)
Núverandi skartgripir? Giftingahringur
Núverandi bók? engin eins og er... verð að fara að finna mér eina góða
Núverandi áhyggja? Hvað Hafdís Una gubbar ofboðslega mikið... en erum að fara til læknis á fimmtud... sjáum hvað hann segir
Núverandi uppáhaldsleikari? æææ man ekki eftir neinum  sérstökum
Núverandi íþrótt? Vagnastruns eins og Tinna :) (hhmm er samt ekki búin að vera dugleg síðustu daga) búið að vera eitthvað svo mikið að gera... bæti úr því strax á morgun
Núverandi löngun? hhmmm úfff það er svo margt
Núverandi tónlist? ekki nein...sit hérna ein í grafarþögn :)
Núverandi ósk? að hún Bella fari að senda mér sms um að litla gullið hennar sé á leiðinni :)

Núverandi texti á heilanum?  mother face mother fokker... hhhmmm ekki alveg það skemmtilegasta eða fallegast... en hann Ívar var hjá okkur um helgina og þuldi þetta alveg út í eitt... algjör töffari :)
Núverandi farði? Púður og maskari
Núverandi undirföt? maður er náttl ótrúlega sexý þessa dagana í gjafarbrjóstarhaldara :)
Núverandi eftirsjá? Alls enginn 
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið? Klára skvísuherbergið og vonandi að setja gardínurnar í mitt herbergi upp
Núverandi blótyrði? bara textinn sem ég er með á heilanum
Núverandi vonbrigði? Engin vonbrigði
Núverandi skemmtun? að skrifa þennan texta :) þarf ekki mikið til að gleðja mann :)
Núverandi Msn manneskjur sem ég er að tala við? enginn
Núverandi hlutir á veggnum? Mynd af mér og Helgu, Gógó systir Birkis, Bumbumyndir af mér, brúðkaupsmynd og margt fleira
Núverandi uppáhalds þáttur? Úfff er alveg dottin út úr allri dagskrá... skvísan heldur manni alveg við efnið :)

Jibbí náði að klára þetta... er búin að ætla að gera þetta í marga daga :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 12:00:34 / helgabjorg

Núverandi

Núverandi föt? Gallabuxur, puma skór, hettupeysa
Núverandi tími? 11:45
Núverandi skap? Mjög gott - mega hress
Núverandi hár? Slegið með toppinn í spennu
Núverandi pirringur? Enginn pirringur í mér
Núverandi lykt? Puma ilmvatnið nýja.. mmm... 
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? Vinna... obbobbobb
Núverandi skartgripir? Eyrnalokkar
Núverandi bók? Man bara ekki hvað hún heitir
Núverandi áhyggja? Að það fari að snjóa, þá verð ég agalega hrædd að keyra á milli.
Núverandi uppáhaldsleikari? Úff engin sérstakur 
Núverandi íþrótt? Bara göngutúrar á kvöldin.
Núverandi löngun? Don't get me started... Mig langar mjög mikið í jeppa, snjósleða, slatta af fötum og ýmislegt meira fallegt.... hehe...
Núverandi tónlist? Held að Bylgjan sé á fóninum hérna í vinnunni
Núverandi ósk? Að við finnum einhvern góðan og flottan jeppa fljótlega

Núverandi texti á heilanum?  Góða ferð, góða ferð, góða ferð....
Núverandi farði? Púður
Núverandi undirföt? Undirföt sem ég keypti í H&M, mjög falleg... ;)
Núverandi eftirsjá? Engin  
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið? Elda fiskibollur í dós í karrýsósu og hafa það svo kósý með Gulla mínum
Núverandi blótyrði? Þið þekkið mig... andskotans helvíti.... 
Núverandi vonbrigði? Engin vonbrigði
Núverandi skemmtun? Skoða myndir úr bústaðnum síðasta föstudag - vá hvað ég gæti migið á mig þegar ég skoða þetta!
Núverandi Msn manneskjur sem ég er að tala við? Birna og Oddný
Núverandi hlutir á veggnum? Myndir af Gulla, Hrafni, Hreini Darra, Davíð, Elfu Sif, systrum mínum og flr og flr... veggurinn í vinnunni fer að verða fullur!
Núverandi uppáhalds þáttur? Prison Break, Grey´s Anatomy, Extreme Makeover: Home Edition,  Related, Big Love

Well well back to work!!!

Sjáumst svo vonandi fljótlega......


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 15:10:50 / Tinsí

KOma svo!

Núverandi föt? Gallabuxur, hvítur hlýrabolur og svartur rúllukragabolur
Núverandi tími? 09:42 gerði þetta sko í morgun...
Núverandi skap? Bara fínt
Núverandi hár? Blautt... var að koma úr sturtu
Núverandi pirringur? Svo mikið rok úti að Lúkas Aron getur ekki sofið úti í vagninum sínum... og hann sefur frekar illa inni...hehe..
Núverandi lykt? Ilmvatnslykt...Naomi Cambell...Paradise Passion..
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? Læra...
Núverandi skartgripir? Hringir...
Núverandi bók? Námsbækur...
Núverandi áhyggja? Vona að Lúkas Aron fái ekki hita eftir sprautuna í gær.. svo við komumst í sundið í kvöld
J
Núverandi uppáhaldsleikari? Brad Pitt svo sæææættuurr....
Núverandi íþrótt? Vagnastruns...
Núverandi löngun? Væri alveg til í að leggja mig smá....
Núverandi tónlist? Óstöðvandi tónlist á Sirkus... (í sjónvarpinu)
Núverandi ósk? Hmmmm.....
Núverandi texti á heilanum?
Núverandi farði? Eyeliner og maskari....
Núverandi undirföt? Gjafabrjóstahaldari.. uhmm sexý.. hehe og naríur...:-)
Núverandi eftirsjá? Engin
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið? Fara í ungbarnasund með Lúkas Aron.. hlakka bara til .. og svo hafa kósýkvöld með familýunni...
Núverandi blótyrði? Nothing...ljótt að blóta!
Núverandi vonbrigði? Ekki nein held ég...
Núverandi skemmtun? Svara þessum spurningum... svaka stuð...
Núverandi Msn manneskjur sem ég er að tala við? Engar - er samt online.. endilega taliði við mig.. hehe..:-)
Núverandi hlutir á veggnum? Fjölskyldumyndir og æðislegu myndirnar sem við keyptum á Spáni!
Núverandi uppáhalds þáttur? Prison Break, nágrannar, Strong Medicene, Grey´s Anatomy, Tekinn, ofl ofl ofl...:-)

Þetta var nú meira stuðið!!

 

 



Tjá tjá.. Tinsí


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 13:14:37 / Bella

Vá ég hef ekkert að gera!!!

Sælar dömur...

Þar sem ég sit bara heima þessa dagana með samdrætti og bíð eftir að koma þessu littla kríli mínu út þá ákvað ég að taka þátt í þessari spurningarunu....það er bara svo lítið að gerast hjá mér þessa dagana að útkoman er ekkert skemmtileg;) En annars er gott að frétta, ætla að reyna að vera búin að þessu áður en helgin er búin er búin að vera með samdrætti núna á 3 dag svo eitthvað hlýtur að vera að gerast......... Svo verð ég með saumó næst....ok....

Bless í bili Bella bumba

Núverandi föt? Svartar jogging buxur og náttbolur...ferlega smart:lol:
Núverandi tími? 12:59
Núverandi skap? gott...
Núverandi hár? úfið...ný skriðin fram úr
Núverandi pirringur? að vera ekki farin af stað:|
Núverandi lykt? hmmm.....hunangslykt, er að fá mér heitt hunnang og sítrónu  ..mmmmm
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? Æ ég veit það ekki....Hef hreinlega ekkert að gera nema að bíða eftir þessu kríli mínu
Núverandi skartgripir? giftingahringur og eyrnalokkar
Núverandi bók? Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes

Núverandi áhyggja? að vera kvefuð í fæðingunni:haha:
Núverandi uppáhaldsleikari? æ man engan í augnablikinu...en margir góðir:S 
Núverandi íþrótt? Hahaha...get varla gengið fyrir grindarverkjum, svo það er eitthvað lítið um íþróttir þessa dagana, ekki það að ég sé eitthvað dugleg annars að stunda þær;)
Núverandi löngun? Byrja í fæðingu
Núverandi tónlist? Hlusta eiginlega bara á Rás 2 þessa dagana annars hef ég verið með slökunartónlist á fóninum
Núverandi ósk? að eignast heilbrigt barn:D
Núverandi texti á heilanum? Gaman er að leika diggaligga lá....( Brúðubílinn )
Núverandi farði? úff...gamall maskari síðan í gær
Núverandi undirföt? Næsta spurning.....
Núverandi eftirsjá? engin....eða jú sakna svoldið að vera í skólanum...annars á maður aldrei að sjá eftir neinu er það nokkuð?
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið? koma mér af stað, er með svo fína samdrætti
Núverandi blótyrði? ekkert soleiðis
Núverandi vonbrigði? hm...ekkert bara
Núverandi skemmtun? úff...æ ég hreinlega veit það ekki.....
Núverandi Msn manneskjur sem ég er að tala við? Hef ekki skráð mig á msn í langan tíma
Núverandi hlutir á veggnum? haha...það er nú ekki mikið. Myndir sem ísold hefur teiknað, myndir af ísold, hestamynd og mynd sem Hafrún mágkona mín gaf okkur hjónunum í brúðkaupsgjöf:lol:
Núverandi uppáhalds þáttur?  Þeir eru nokkrir góðir...annars nenni ég ekki að horfa mikið á sjónvarp núna...


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 23:14:06 / Sifs

Vúhú skemmtó !!!

Núverandi föt? Gráar íþróttabuxur og hvítur íþróttabolur
Núverandi tími? 23:01
Núverandi skap? Bara fínt
Núverandi hár? Úfið.... var að koma af fimleikaæfingu
Núverandi pirringur? Algjörlega enginn
Núverandi lykt? Ælulykt af eftir Andra Thor hi hi...
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera? Sofa
Núverandi skartgripir? Hringir og eyrnalokkar
Núverandi bók? Draumalandið
Núverandi áhyggja? Ljóti hóstinn hjá litla prinsinum mínum
Núverandi uppáhaldsleikari? Nicholas Cage algjört æði, Matthew McCaugnaly algjör sjarmör, Kiefer Sutherland algjör nagli
Núverandi íþrótt? Fimleikar
Núverandi löngun? Knús og kossar frá kallinum og jafnvel e-ð meira hehehe....
Núverandi tónlist? Engin
Núverandi ósk? hmm leyndó
Núverandi texti á heilanum? Digga ligga ligga Skjalda er borin, digga ligga ligga hún átti kálf..........
Núverandi farði? Púður og maskari....líklega mestur farinn....síðan í morgun
Núverandi undirföt? Nike Íþróttatoppur og svartar boxer
Núverandi eftirsjá? Engin
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið? Stökkva upp í rúm til kallsins
Núverandi blótyrði? Ekkert svoleiðis
Núverandi vonbrigði? Þorði ekki í araba-flikk-heljar á æfingu í kvöld :(
Núverandi skemmtun? Fylla út í þetta :)
Núverandi Msn manneskjur sem ég er að tala við? Engar - er offline aldrei þessu vant
Núverandi hlutir á veggnum? Tolla myndir, fjölskyldumyndir og brosbarnamyndir af Elfu Sif prinsessu
Núverandi uppáhalds þáttur?Grey's Anatomy, Desperate Housewives, Oprah, Strong medicine, Innlit-Útlit, Veggfóður, Nágrannar, Prison brake og allir CSI þættirnir... en ég næ alls ekki alltaf að horfa á þetta allt saman en þar sem að ég er heimavinnandi húsmóðir næ ég stundum að horfa á endursýningarnar á daginn :)

Jæja allir að taka þátt....voða gaman !!!

Knús og góða nótt

Sif


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 10:28:11 / Tinsí

Heyalíúba!

Hæ skvísur ;)

 

 



Gaman að sjá hvað síðan okkar er að lifna við!! En já það er sko BRJÁLAÐ að gera hjá mér þessa dagana.. 100% ,,fæðingarorlof” og 100% skóli!  Hlakka rosa til þegar þetta verður allt búið þann 20. nóv!. En ég er á fullu í æfingarkennslunni búin með 2 vikur af  7. Þetta er allt bara rosa skemmtilegt.. en ég viðurkenni það að maður er ekki alveg með allan hugann við námið..það er frekar erfitt þegar maður á svona lítinn sætan prins sem tekur ansi mikið af athyglinni hjá manni.. en hann er svo góður sefur alltaf 2 langa lúra í vagninum sínum á daginn! Við Lúkas Aron fórum í námsferð í gær í Þrastaskóg.. já ákvað að taka hann bara með í vagninum og hann svaf frá 8 – 12:30 frekar næs.. en allt yngsta stig fór í þessa ferð og það var mjög gaman. Krakkarnir  voru alveg æstir í vagninn.. allir að fá að kíkja á hann.. já svo sló nafnið alveg í gegn.. hehe alveg eins og Lukas í Rockstar Supernova... það fannst þeim frekar flott!8)

Já svo erum við farin að fara á mömmumorgna upp í kirkju og það er mjög gaman.. röltum alltaf með Valgý og Rakel.. svo erum við að fara að byrja í ungbarnasundi í næstu viku og verðum við í hóp með henni Valgý og Hafdísi Unu.. þau verða sko sætust í sundi... Lúkas Aron og Hafdís Una.

En já þetta er svona helsta að gerast þessa dagana... svo er ég farin að bíða spennt eftir sms eða hringingu frá Bellu minni um að allt sér farið af stað.. (drekka Tonic water ;))orðin þvílíkt spennt.. vona að þetta verði lítil skvísa.. svo að Lúkas Aron eignist kærustu... hehe!:haha:

Tjá tjá.. Tinsí..:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 16:05:20 / Sifs

Hi girls !!!

Tek Helgu til fyrirmyndar.... enda er hún orðin fyrirmyndarhúsmóðir á Skaganum !

Það er auðvitað alltaf fínt að frétta héðan úr kotinu. Ég er ekki frá því að það sé að koma yfir mann svona svollítil værð, það er svo þægilegt þegar það er farið að kólna úti og komið MIKIÐ rok þá nennir maður bara alls ekki úr náttfötunum. T.a.m. er klukkan núna 15:43 og ég er enn í náttfötunum :) Andri Thor er búinn að vaka í heilar 4 klst síðan hann vaknaði í morgunn. Annars líður honum líka bara svo vel úti í vagninum dúðaður flísgalla með sæng og lætur rokið rugga sér - ég meina hverjum myndi ekki líða vel í þessum aðstæðum og lúlla bara. En ég er ekki frá því að ég verði aðeins OF löt svona á náttfötunum, nenni engu. Æji hversu oft í viðbót á ég eftir að vera heima allann daginn með yndilsegt barn sem sefur út í eitt og ég bara ein með sjálfri mér... samkvæmt Hlyni fæ ég allaveganna ekki svona fæðingarorlof aftur... börnin eiga víst ekki að vera fleiri... þannig að ég VERÐ að njóta þessa tíma.
Annars ætla ég að fara að föndra (scrappa) á fullu núna en það er líka bara svo gaman og afslappandi að það verður bara gaman að dúlla í því í vetur þegar snjórinn er kominn.... by the way það er allt á kafi í snjó
Nú svo á ég líka heilann helling af ljósmyndum sem bíða eftir að komast í myndaalbúm.... já það er bara nóg að gera !!!

En ég fer líka út fyrir hússins dyr !
Ég er byrjuð að æfa fimleika einu sinni viku með frábærum stelpum á öllum aldri, ég er í gönguklúbb þar sem við nokkrar stelpur röltum um Mosó einu sinni í viku :)
Ég og Helga skelltum okkur á ball á Broadway með Dilönu og Á móti Sól og það var geggjað !!
Ég og Sif fórum á langþráð kaffihús um daginn - alltaf svo gott að hittast og kjafta.
Svo er ég búin að kíkja í Hveró á vinkonur mínar þar, og Valgý kíkti í bæinn um daginn og röltum við Laugaveginn og fengum okkur að borða á Sólon og versluðum á krílin okkar.
Í gær fór ég í Kringluna með Ásdísi vinkonu og verlsaði MÉR föt - bara gaman :)

Um helgina ætlum við vísitölufjölskyldan að skella okkur í Munaðarnes í bústað. Allir velkomnir í kaffi ;) Ásdís og Rúnar ætla að koma með skvísurnar sínar í heimsókn og það verður án efa mjög gaman. Elfa Sif er búin að fá krossara og verður hann með í för :)
Á heimleiðinni er stefnan tekin í heimsókn til Bellu bumbu (síðasti séns að sjá litlu bumbuna hennar) og hennar familií á Hvanneyri og svo verður maður eiginlega að kíkja til nýju húsmóðurinnar á Skaganum !!

En reynum nú endilega að hittast ALLAR sem fyrst. Helga ! Þú ert svona mest busy - hvaða dagur myndi henta þér í morgunverð/hádegisverð helst sem fyrst ???

Hlynur hélt ég myndi aldrei ná því að blogga aftur á þessu ári - en ég hér með afsanna það :)

Knús og kossar

Sif


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 16:37:01 / helgabjorg

Hvað er um að ske hérna...

Er ekki kominn tími á smá update eða...
gerist aldrei neitt á þessari síður - svo eru komin þessu fínu nýju look! (allavega allt betra en þetta) c",)
Komin tími á að laga eitthvað til hérna.. hehe..
Og tími til komin að þið farið að tjá ykkur eitthvað! 

En allavega... þá er bara allt mjög gott að frétta af mér.
Helgan er orðin skagaskvís - flutti alveg til Gulla fyrir ca mánuði síðan og er að fíla mig alveg í botn þarna á skaganum! Voða kósý og góður staður :)
Eftir að ég kynntist Gulla hef ég verið að prófa ýmislegt í fyrsta skipti. Eins og t.d. að smala.... sem var náttúrulega bara geggjað gaman! Svo á síðustu helgi var verið að saxa niður rollurnar. hehe... Ég fékk nú smá hnút í magann þegar Gulli sagði hvað við værum að fara að gera uppí sveit en... þegar ég var komin með svuntuna og hnífinn við eldhúsborðið var þetta bara gaman! Enda allir rosa hressir og skemmtilegir við borðið :) Það var svo skellt skrokk á borðið og svo var skorið niður til að hakka, skorið niður í gúllas, lundir og flr.. nammnamm...
Þetta var semsagt bara æðislega gaman - alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt...

Ég og Sif skelltum okkur á ballið með Magna og Dilönu og það var kliiiikkað gaman - gæsahúð allan tíman og mikið dansað og sungið! Alveg frábært kvöld! :) :) :)

Svo er ég bara komin í húsmóðurstarfið á Skaganum - reyni alltaf að hafa eitthvað gott í matinn... halda fínu og hreinu! Sjáiðið mig ekki alveg fyrir ykkur :)
Hvern hefði nú grunað fyrir hva... einu ári kannski að ég stæði við eldavélina eftir vinnu að malla í matinn!! c",)
En þetta gengur bara ágætlega hjá stelpunni!

Var að kaupa húsgögn í stofuna áðan og er alveg súperánægð... skenk, sjónvarpsskenk og sófaborð! Geeeeegjað flott sko... :)
"þetta er ekkert verð fyrir þennan pening" (úr stuðmannamyndinn nýju) hehe...
Núna ætlar Helgan svo bara að fara að raða og sjæna eitthvað!

Á dagskrá er svo hittingur - hef nú ekki getað mætt í nokkur skipti núna... er alveg að fara að grenja yfir þessu!!
Bara svona smá info:
- Ég hef ekki enn séð Berglindi preggó... fer að verða um seinan

- Ég hef ekki ennþá séð Lúkas Aron sem er skammarlegt, verð að fara að hitta hann og knúsa...

- Ég hef ekki enn séð nýja húsið hennar Katrínar....

- Ég hef ekki enn séð nýju íbúðina hennar Báru.....

- Svo er bara alltof langt síðan ég hitti margar ykkar sem er bara alls ekki nógu gott!!!!

En jæja... Helgan með rugluna kveður og sér ykkur vonandi mjööög fljótlega!!!
Býð ykkur á Skagann fljótlega.... aiiight!
See'ya 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti